Íþróttir helgarinnar: Kvennalið Þróttar aftur af stað
Kvennalið Þróttar í blaki hefur keppni á ný í kvöld eftir langt jólafrí þegar það heimsækir Stjörnuna í Garðabæ á morgun. Körfuknattleikslið Hattar mætir FSu á Selfossi í kvöld.Þróttarstelpur fóru með kvöldflugi til Reykjavíkur en þær leika gegn Stjörnunni í Ásgarði klukkan 13:00 á morgun.
Þróttarliðið er í þriðja sæti deildarinnar en hefur spilað fæsta leiki allra liða í deildinni eða sex. Baráttan er hörð um efstu þrjú sætin en HK, sem er í öðru sæti, vann nýverið topplið Aftureldingar.
Höttur heimsækir FSu á Selfossi í fyrstu deild karla í körfuknattleik en leikurinn hefst klukkan 19:15. Höttur er í fjórða sæti með tólf sigra þegar tíu umferðir hafa verið leiknar.
FSu er hins vegar jafnt Breiðabliki, sem Höttur vann fyrir viku, í 5. – 6. sæti með tíu stig. Fimm efstu sæti deildarinnar veita sæti í úrslitakeppninni.