Friðrik Reynis og Glæsir unnu A-flokkinn á Ístöltinu – Myndir

istolt 2014 0002 webFriðrik Reynisson og Glæsir frá Lækjarbrekku 2 fóru með sigur af hólmi í A-flokki í Ístölti Freyfaxa sem haldið var í Fossgerði um helgina. Veðrið setti verulegt strik í reikninginn við mótahaldið.

Hefðin er að halda það á ísilögðu vatni og til stóð að halda það við Tjarnarland eða á Eiðavatni. Því var frestað vikuna áður vegna veðurs og kvöldið fyrir mótsdag kom í ljós að ísinn á Eiðavatni var ekki nógu traustur.

Því var mótið fært á brautina í Fossgerði. Mikil snjókoma og slydda var á meðan mótinu stóð og því nærtækara að tala um krapatölt fremur en ístölt.

Sem fyrr sagði urðu Friðrik og Glæsir hlutskarpastir í A-flokki með einkunnina 8,56. Sigurður J. Sveinbjörnsson og Eyvör frá Neskaupstað urðu í öðru sæti með einkunnina 8,11 og Friðrik Reynisson og Aðall frá Hlíðarbergi í því þriðja með 8,10.

Í B-flokki sigraði Guðbjartur Hjálmarsson á Hulinn frá Sauðafelli með einkunnina 8,26. Einar Ben Þorsteinsson á Eddu frá Egilsstaðbæ sigruðu í opnum flokki með einkunnina 7,00 og Guðrún Harpa Jóhannsdóttir á Gloppu frá Litla-Garði í unglingaflokki með sömu einkunni.

Nánari úrslit frá mótinu eru á www.freyfaxi.org

istolt 2014 0449 webistolt 2014 0027 webistolt 2014 0053 webistolt 2014 0063 webistolt 2014 0071 webistolt 2014 0091 webistolt 2014 0108 webistolt 2014 0120 webistolt 2014 0180 webistolt 2014 0186 webistolt 2014 0198 webistolt 2014 0212 webistolt 2014 0255 webistolt 2014 0293 webistolt 2014 0298 webistolt 2014 0318 webistolt 2014 0327 webistolt 2014 0338 webistolt 2014 0347 webistolt 2014 0361 webistolt 2014 0368 webistolt 2014 0385 webistolt 2014 0396 webistolt 2014 0406 webistolt 2014 0417 webistolt 2014 0430 webistolt 2014 0442 webistolt 2014 0449 web

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.