Fyrri keppnisgrein Ernu flýtt til morgundagsins
Austfirska skíðakonan Erna Friðriksdóttir mun hefja leik fyrr en áætlað var á vetrarólympímóti fatlaðra sem fram fer í Sotsjí í Rússlandi. Veðurfarið er að setja töluvert strik í reikninginn hjá mótshöldurum.Fram kemur á heimasíðu Íþróttasambands fatlaðra að töluverð rigning og þoka séu núna á keppnissvæðunum í Sotsjí og af þeim sökum hafi verið ákveðið að flýta svigkeppni kvenna.
Upphaflega átti Erna að keppa í svigi á föstudaginn næstkomandi en sem fyrr segir hefur keppnin í svigi kvenna verið færð fram til morgundagsins, 12. mars.
Keppendur hefja því leik kl. 9 að morgni að staðartíma, en það er kl. 5 árdegis að íslenskum tíma. Svig sjónskertra kvenna hefst kl. 9, svig standandi kvenna kl. 9:15 og svig sitjandi kvenna kl. 9:40 (5:40 hér heima) en Erna keppir í sitjandi flokki.
Engar aðrar breytingar hafa verið gerðar á keppnisdagskrá íslensku keppandanna og því mun Erna að óbreyttu keppa í stórsvigi sunnudaginn 16. mars.
Auk Ernu keppir Jóhann Þór Hólmgrímsson einnig á leikunum fyrir Íslands hönd.