Bikarúrslitahelgi í blaki: Í okkur situr hefndarþorsti

blak throttur hk meistarar 06042013 0241 webKvennalið Þróttar tekur um helgina þátt í úrslitakeppni bikarkeppninnar í blaki sem fram fer í Laugardalshöll. Þróttur tapaði fyrir HK í úrslitum í fyrra og fyrirliði liðsins viðurkennir að í því sitji „ákveðinn hefndarþorsti."

„Okkur líst vel á helgina og erum orðnar ótrúlega spenntar að fá að spila í höllinni," segir Kristín Salín Þórhallsdóttir, fyrirliði Þróttar.

Liðið spilar gegn Aftureldingu í undanúrslitum klukkan 14:00 á morgun en úrslitaleikurinn á sunnudag. Í hinum leiknum mætast HK og Þróttur Reykjavík.

Bæði Afturelding og HK eru ofar en Þróttur í deildinni en Kristín segir þá stöðu ekki skipta neinu máli fyrir helgina."Bikarinn og deildin eru tvennt ólíkt og þess vegna á hún ekki að hafa nein áhrif."

Þróttur tapaði fyrir HK í æsilegum úrslitaleik í fyrra og Kristín viðurkennir að takmark helgarinnar sé að komast í úrslitin og ná fram hefndum. „Það situr vissulega í okkur og því já ákveðinn hefndarþorsti, ef svo má að orði komast."

Þróttarstúlkur hafa hitað upp fyrir leikinn síðustu daga en á síðu blakdeildarinnar á Facebook hafa birst kynningar á leikmönnum. Þær hafa síðan breyst í vinsældakosningu en máltíð er í boði fyrir tvo fyrir þann leikmann sem vinnur sér inn flest „like"

„Þetta snýst nú aðallega bara um það hver getur unnið. Það er keppnisskap í stelpunum," segir Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.