Fjarðabyggð samdi við sjö íþróttafélög um rekstur aðstöðu

ithrottafelog fjardabyggd samningarPáll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri, undirritaði nýverið samninga við þau sjö íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu. Samkomulagið sem náðist greiðir fyrir aðgangi íbúa, og þá sérstaklega ungs fólks, að fjölbreyttara íþrótta- og tómstundastarfi.

Félögin sjö eru Golfklúbbur Norðfjarðar, Golfklúbbur Byggðarholts, Golfklúbbur Fjarðabyggðar, Hestamannafélagið Blær, Kajakklúbburinn Kaj, Skotíþróttafélagið Dreki og Vélhjóla- og íþróttafélag Fjarðabyggðar.

Samningarnir felast í styrkjum sem renna til uppbyggingar og rekstrar viðkomandi íþróttasvæða á næstu þremur árum. Auk þess sem íþróttafélögin kappkosta að byggja upp aðstöðu viðkomandi íþróttagreinar, mun hvert þeirra gangast fyrir reglubundnum sumarnámskeiðum fyrir börn.

Styrktarfjárhæð hvers árs nemur um 10 milljónum króna og verður á samningstímanum alls 31,5 milljón króna varið í uppbyggingar- og rekstrarstyrki.

Páll Björgvin undirstrikaði mikilvægi íþróttafélaganna fyrir þann grunn sem íþrótta- og tómstundastarf í Fjarðabyggð byggir á og forvarnargildi. Fjölbreytni starfsins hafi áhrif á skírskotun þess og þátttöku almennings, ekki hvað síst unga fólksins.

Mikilvægt sé fyrir samfélagið að kraftmikið og uppbyggjandi barna- og unglingastarf dafni, drifið áfram af áhugasömum sjálfboðliðum í samstarfi við foreldra. Við þetta starf vilji bæjarstjórn Fjarðabyggðar styðja sem mikilvægan þátt fyrir vöxt og viðgang samfélagsins.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.