Blak: Hlökkum til að spila fyrir fullu húsi í miklum látum
Þróttur og Afturelding mætast öðru sinni í baráttu sinni um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna í Neskaupstað í kvöld. Þróttur vann fyrri leikinn í Mosfellsbæ á þriðjudagskvöld í oddahrinu. Þjálfari Þróttar segir að það skipti engu máli nú.„Við græðum ekkert á þeim sigri nema smá búst fyrir sálina og sjálfstraustið. Staðan er núll-núll og lið Aftureldingar mun koma brjálað til leiks eftir að hafa glatað niður fyrri leiknum," segir Matthías Haraldsson, þjálfari Þróttar.
Þróttur vann magnaðan sigur í fyrri leiknum 2-3 eftir að hafa tapað fyrstu tveimur hrinunum. Liðin sýndu oft á tíðum frábær varnartilþrif og sóknirnar voru langar en Matthías sagði fyrir leikinn að Þróttur yrði að hafa þrek og þor til að leggja deildarmeistarana.
Síðustu dagar hafa farið í æfingar og undirbúning fyrir leikinn í kvöld. „Við þurfum að taka meiri sénsa í uppgjöfum og bæta móttökuna enn frekar. Þetta snýst alltaf um fínstillingu."
Þróttarliðið hefur yfirleitt verið sterkt á heimavelli, sérstaklega í úrslitakeppninni þegar Norðfirðingar fylla íþróttahúsið.
„Við hlökkum til að spila heima fyrir fullu húsi í miklum látum. Það vinnst samt ekkert af sjálfu sér þótt menn séu á heimavelli. Það þarf að vinna erfiðisvinnuna og ég hef fulla trú á að stelpurnar geri það."
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki hampar Íslandsmeistaratitlinum en Þróttur er ríkjandi meistari. Þriðji leikurinn verður í Mosfellsbæ á mánudag. Þurfi fleiri leiki til verða þeir eftir páska.