Þróttur steinlá gegn Aftureldingu: Við horfum bara á næsta leik
Kvennalið Þróttar beið skipbrot í þriðja leik liðsins gegn Aftureldingu um Íslandsmeistaratitilinn í blaki í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Afturelding valtaði yfir Þrótt í fyrstu tveimur hrinunum og vann 3-0 sigur.„Þetta var aðeins að koma hjá okkur í þriðju hrinunni en það var ekki nóg," sagði Matthías Haraldsson, þjálfari Þróttar í samtali við Austurfrétt í morgun.
Hann vildi annars sem minnst ræða leikinn. „Við horfum á næsta leik. Við ætlum með þetta í fimm leiki. Nú höfum við allt að vinna en engu að tapa en við verðum að spila betur en í síðustu tveimur leikjum."
Afturelding vann hrinurnar 25-11, 25-13 og 25-21. Fjórði leikurinn í rimmunni fer fram í Neskaupstað eftir viku. Sigri Afturelding í þeim leik hampar liðið Íslandsmeistaratitlinum.