Opnað í Oddsskarði í dag
Snjórinn er kominn í Oddsskarð og verður opnað þar klukkan 16:00. Svæðið verður opið alla daga vikunnar fram til sunnudagsins 9. desember, eftir því sem veður leyfir.
Á virkum dögum verður ein lyfta opin frá kl. 16 til 19, en um helgar verða tvær lyftur opnar frá kl. 12 til 15.
Upplýsingar um opnun og færð eru veittar í síma 878 1474 og einnig á vef skíðamiðstöðvarinnar oddsskard.is.
Miðstöðin verður svo opnuð aftur á annan í jólum, þann 26. desember, eftir jólalokun sem hefst 10. desember.
Í Stafdal eru menn bjartsýnir á að geta opnað í byrjun desember.