Leikir helgarinnar: Fjarðabyggð tekur á móti Völsungi
Aðeins einn leikur verður á austfirskum knattspyrnuvöllum um helgina en Fjarðabyggð tekur á móti Völsungi í annarri deild karla. Liðin leika annars á útivelli.Leikurinn er fyrsti heimaleikur Fjarðabyggðar á grasvellinum á Eskifirði í sumar en fyrri heimaleikirnir tveir hafa verið spilaðir á gervigrasinu í Neskaupstað. Leikurinn hefst klukkan 20:00 í kvöld.
Huginn reið á vaðið af austfirsku liðunum og lék fyrsta heimaleikinn á grasi um síðustu helgi. Liðið mætir Reyni í Sandgerði klukkan 14:00 á morgun.
Á sama tíma verður leikið í þriðju deild karla. Einherji heimsækir Grundarfjörð, Höttur Bergserki á Víkingsvöll í Reykjavík og Leiknir FSR á Hvolsvelli.
Kvennalið Sindra og Fjarðabyggðar mætast á Hornafirði á þriðjudagskvöld.