Treyjan hans Gylfa afhent
VHE átti hæsta boð í áritaða treyju Gylfa Þórs Sigurðssonar, leikmanns Tottenham og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, á uppboði til styrktar 6. flokki Hattar/Fjarðabyggðar.Guðgeir Sigurjónsson, framkvæmdastjóri VHE á Austurlandi, tók nýverið við treyjunni fyrir hönd fyrirtækisins. Upphæðinni var skipt jafnt milli félaganna sem notuðu hana til ferðar á Shellmótið í Vestmannaeyjum.
Höttur var að senda lið á mótið í þriðja sinn en Fjarðabyggð í annað skiptið.
Mótið hefur verið haldið í Vestmannaeyjum í 30 ár og er eitt glæsilegasta knattspyrnumóts landsins en þangað mættu alls 108 lið frá 33 félögum að þessu sinni.