Sigurður Donys: Erum komnir í úrslitakeppni um að halda sætinu
Sigurður Donys Sigurðsson, fyrirliði knattspyrnuliðs Einherja, segir sérhvern leik sem liðið á eftir af Íslandsmótinu vera orðinn að úrslitaleik um hvort liðið haldi sæti sínu í þriðju deild. Liðið tapaði illa fyrir Leikni Fáskrúðsfirði á heimavelli í gærkvöldi.„Við leggjum þessa fjóra leiki sem eftir eru upp sem úrslitakeppni. Við verðum bara að vinna þá," sagði Sigurður Donys í samtali við Austurfrétt eftir leikinn.
Liðið á eftir einn heimaleik, gegn Víði í næst síðustu umferð en þrjá útileiki. Leikurinn í kvöld hefði ekki getað byrjað verr fyrir Einherjamenn sem fengu á sig fyrsta markið af fjórum 24 sekúndum eftir að flautað var til leiks.
„Við fengum mark beint í andlitið og eftir það varð leikurinn mjög erfiður. Þetta var langt í frá það sem við ætluðum að gera.
Við vorum peppaðir vel upp fyrir leik en það mistókst því við þurfum að vera peppaðir í eiknum en ekki bara fyrir hann. Svona hefur sagan því miður verið í sumar."
Liðið hefur aðeins skorað 16 mörk, átta mörkum minna en það lið sem hefur skorað næst fæst mörk í deildinni.
„Það er rosalega erfitt að skora þegar við framherjarnir fáum ekki meira úr að moða frá miðjunni. Auðvitað verðum við framherjarnir að skora en það hefur ekki gengið upp."