Tveir austfirskir blakmenn í U-19 ára landsliði Íslands
Ragnar Ingi Axelsson og María Rún Karlsdóttir úr Þrótti Neskaupstað spila um þessar mundir með íslenska U-19 ára landsliðinu á blaki sem fram fer í Danmörku.María Rún hefur fest sig í sessi í ungu liði Þróttar í fyrstu leikjum liðsins á Íslandsmótinu og verið í hópi stigahæstu leikmanna þar.
Bæði tvö hafa áður tekið þátt í landsliðsverkefnum.
Mótið hófst í dag og spilað verður áfram á miðvikudag og fimmtudag. Til leiks mæta lið úr norður Evrópu.