Körfubolti: Öruggur sigur Hattar á ÍA - Myndir
Höttur heldur toppsæti fyrstu deildar karla í körfuknattleik eftir öruggan 101-80 sigur á ÍA á Egilsstöðum í kvöld. Fyrirliðinn segir að lagt hafi verið upp með að fylgja eftir góðu gengi í síðustu leikjum.Höttur byrjaði vel, skoraði sjö fyrstu stigin og komst í 12-2 strax í fyrsta leikhluta. Gestirnir minnkuðu þann mun í 17-16 en Hattarmenn bitu aftur frá sér og skoruðu sjö síðustu stigin í leikhlutanum.
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, átti ótrúlegan kafla í öðrum leikhluta þegar hann skoraði fjórar þriggja stiga körfur á tveggja mínútna kafla og ekki var langt í að fimmta þriggja stiga skotið í röð færi ofan í.
Í stöðunni 48-31 virtust Hattarmenn þeirrar skoðunar að mótherjar væru sigraðir. Þeir slökuðu á og spiluðu kæruleysislega þannig að Skagamenn skoruðu 31 stig í leikhlutanum og voru 54-49 undir í hálfleik.
Hattarliðið gaf hins vegar engin færi á sér í seinni hálfleik. Þreyta fór að segja til sín hjá Skagamönnum og henni fylgdi pirringur þannig að liðið fékk á sig tvær tæknivillur fyrir kjaftbrúk.
Í lok þriðja leikhluta var Höttur kominn í 78-59 og undir lok fjórða leikhluta fengu yngri leikmenn að spreyta sig. Kaninn Tobin Carberry var hvíldur, enda búinn að skora 31 stig en táningurinn Einar Bjarni Hermannsson setti niður þrist í fyrsta skipti sem hann snerti boltann.
„Við lögðum upp með að stoppa Kanann þeirra því ef hann kemst á skrið getur hann skorað frá miðju ef hann vill. Aðallega snérist þetta um að spila vel eins og í síðustu leikjum," sagði Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar, fyrirliði Hattar, í samtali við Austurfrétt eftir leikinn.
Sem fyrr segir var heimaliðið með örugg tök á leiknum nema á kafla í öðrum leikhluta. „Menn misstu hausinn og ætluðu að fara of geyst en gleymdu að spila vörn. Málið var rætt inni í klefa í hálfleik."
Hann var annars sáttur við leikinn og innkomu yngri leikmanna. „Það er mikilvægt að eiga góðan og breiðan hóp."
Viðar Örn var næst stigahæstur Hattarmanna með 22 stig og Hreinn Gunnar Birgisson skoraði 18. Fannar Freyr Helgason skoraði 18 stig fyrir ÍA og Zachary Jamarco 24.