Toppliðin mætast í körfunni: Nauðsynlegt að vinna á heimavelli
Höttur tekur á móti FSu í toppslag fyrstu deildar karla í körfuknattleik á Egilsstöðum í kvöld. Þjálfari Hattar vonast eftir góðum stuðningi heimamanna í leik sem skipti liðið miklu máli. Blaklið Þróttar spila heimaleiki um helgina.„Leikurinn leggst vel í okkur og strákarnir hafa verið vel stemmdir á æfingum í vikunni. Vonandi koma bæjarbúar í baráttuna með okkur og fylla áhorfendapallana," segir Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, í samtali við Austurfrétt.
Liðin mættust áður í nóvember og þá vann FSu 76-63 á Selfossi.
„FSu eru með gott lið, þeir eru með fínar skyttur og vilja spila hraðan bolta. Við spiluðum hörkuleik við þá á Selfossi þar sem við vorum inní leiknum þar til lítið var eftir þrátt fyrir mikil veikindi í hópnum."
Höttur er í dag í efsta sæti með 20 stig en hefur leikið leik meira en FSu sem er með 16 stig. Það er því von á hörkuleik.
„Það væri stórt fyrir okkur að taka sigur og eiginlega nauðsynlegt uppá innbyrðis úrslit liðanna ef við verðum jafnir þeim í lok tímabilsins."
Blaklið Þróttar spila bæði heimaleiki um helgina. Kvennaliðið leikur tvo leiki gegn HK og hefst sá fyrri 20:00 í kvöld en sá seinni 12:00.
Karlaliðið fær Þrótt Reykjavík í heimsókn og hefst sá leikur klukkan 14:00 eða að kvennaleiknum loknum.
Báðir leikirnir verða sendir út beint á Ustream-rás Þróttar: http://www.ustream.tv/channel/throtturnesblak