Blak: Karlaliðið tapaði fyrsta leik
Karlalið Þróttar í blaki steinlá í fyrsta leik undanúrslita Íslandsmótsins gegn Stjörnunni í Garðabæ í gærkvöldi. Liðin mætast aftur á morgun.Stjarnan vann 3-0 eða í hrinum talið 25-23, 25-17 og 25-19. Stigahæstur Þróttara var Valgeir Valgeirsson með tíu stig.
Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki kemst í úrslit en liðin mætast öðru sinni í Neskaupstað klukkan 20:00 annað kvöld.
Kvennaliðið hefur keppi á laugardag en það mætir deildar- og bikarmeisturum Aftureldingar.