Knattspyrna: Lengjubikarnum lokið hjá austfirsku liðunum
Austfirsku liðin hafa lokið þátttöku sinni í Lengjubikarnum þetta vorið en engu þeirra tókst að komast í úrslitakeppnina. Framundan er bikarkeppnin og svo Íslandsmótið.Það var kvennalið Hattar sem spilaði síðasta leikinn en liðið tapaði 0-2 fyrir Hömrunum í Fjarðabyggðarhöllinni á laugardag.
Liðið endaði neðst í riðli 3 í C-deild án stiga. Fjarðabyggð lék í sama riðli og endaði í þriðja sæti með fimm stig en liðið vann Hött 3-1 í fyrstu umferðinni.
Það var karlalið Fjarðabyggðar sem hóf keppnina og það lauk einnig fyrst keppni fyrst en riðlakeppni A-deildar karla lauk í lok mars. Fjarðabyggð endaði í 6. sæti riðils 3 með sex stig eftir sigra gegn Keflavík og Haukum og jafntefli gegn Grindavík en tap fyrir Þór, Val, Stjörnunni og ÍA.
Leiknir og Höttur léku í riðli 3 í B-deild. Leiknir varð í öðru sæti með 12 stig, stigi á eftir Völsungi en Höttur í þriðja sæti með átta stig. Leiknir vann Hött í fyrstu umferðinni.