Körfubolti: Hattarmenn hefja leik í Lengjubikarnum

karfa hottur fsu 0163 webHattarmenn undirbúa sig þessa dagana undir keppni í Dominos-deild karla í körfubolta í vetur. Lengjubikarinn er hafinn og í kvöld leikur Hattarliðið sinn fyrsta leik, er Fjölnismenn koma í heimsókn í Íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum.

Leikurinn hefst kl. 18:30 og aðgangur er ókeypis. Lengjubikarinn er undirbúningsmót fyrir deildarkeppnina og spennandi verður að sjá hvernig Hattarliðið kemur undan sumri.

Höttur leikur svo annan heimaleik á laugardag kl. 16:00, en þá koma Þórsarar frá Akureyri í heimsókn. Auk Fjölnis og Þórs eru Haukar og Stjarnan með Hattarmönnum í C-riðli Lengjubikarsins.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar