Matthías Haralds: Þjálfarinn finnur alltaf fyrir vissum vanmætti

blak_throttur_hk_meistarar_06042013_0270_web.jpgMatthíasi Haraldssyni, þjálfara Þróttar, fannst erfitt að horfa upp á liðið missa niður tveggja hrinu forskot gegn HK á heimavelli í gær. Liðið kom til baka og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í oddahrinunni.
„Maður finnur fyrir vissum vanmætti. Maður vill geta gert meira. Eins og ég sagði við þær þá get ég ekki tekið á móti fyrir þær eða lamið boltann í gólfið. Þær verða að gera það,“ sagði Matthías í samtali við Austurfrétt eftir leikinn.

Þróttur spilaði vel fyrstu tvær hrinurnar og vann þær. Næstu tvær voru hins vegar skelfilegar þar sem HK slátraði heimaliðinu.

„Leikáætlun okkar gekk upp í byrjun. Við gerðum fá mistök og vorum með góðar uppgjafir og móttökur. Við vitum að HK getur spilað vel og þær hrukku í gírinn en móttakan var afleit í þriðju og fjórðu hrinu.

Við komum reyndar til baka í þriðju hrinunni og ég var sæmilega bjartsýnn. En svo kom sú fjórða og ég held að ég hafi ekki séð liðið spila svona illa í vetur.“

Svíður undan eina tapinu

Óhjákvæmilega komu upp minningar úr bikarúrslitaleiknum frá því fyrir tveimur vikum, eina tapleik Þróttar í vetur. Liðið var þá með 2-0 forustu gegn HK og virtist í góðum málum en Kópavogsliðinu tókst samt að vinna leikinn.

„Það sveið undan því tapi, sérstaklega því við vorum 2-0 yfir. Það er samt sagt að maður læri meira af einum tapleik en tíu sigurleikjum og sá leikur hjálpaði okkur í þessari rimmu.“

Ýttu rækilega á reset-takkann

Matthías segist hafa verið ánægður með sem Þróttarliðið sýndi. Bæði með að rífa sig strax upp eftir bikarleikinn og vinna Íslandsmeistaratitilinn með að leggja HK í þremur leikjum og með því að klára leikinn á heimavelli í gær.

„Það var svakalega gott að klára þetta hér í dag fyrir framan okkar fólk. Það er ekkert sjálfgefið að klára HK í þremur leikjum í röð. Mér finnst við hafa sýnt það í þessari seríu að við erum besta liðið í vetur.

Við ýttum rækilega á „reset“ takkann eftir fjórðu hrinu. Við fórum í leik sem við köllum kjúklinginn og tókst að laða fram bros. Markmiðið var að fá stelpurnar til að hugsa um eitthvað annað en að þær væru að fara í fimmtu hrinuna eftir að hafa skíttapað þeirri fjórðu.

Í kjölfarið fylgdu uppgjafirnar, við skoruðum beint úr þeim sem voru mikilvæg stig í lokin. Það var gott að vera alltaf skrefinu á undan í síðustu hrinunni.“

Strax byrjað að byggja upp lið næsta vetrar

Árangur Þróttar er ekki síst merkilegur í ljósi þess að síðustu tvö ár hefur liðið misst lykilmenn í byrjun hvers tímabils en samt verið samkeppnishæft í öllum keppnum.

„Undirbúningurinn við að púsla saman liðinu fyrir næsta tímabil er þegar hafinn. Það eru alltaf einhverjar breytingar,“ segir Matthías en vill ekki gefa upp hvaða breytingar séu fyrirsjáanlegar í dag.

„Við byggjum liðið upp í sumar. Fyrir tveimur árum misstum við fimm eða sex menn og þrjá fyrir þetta en náðum að koma með sterka leikmenn inn í staðinn.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar