Fimm Norðfirðingar fulltrúar Austurlands á Smáþjóðaleikunum
Fjórir leikmenn Þróttar Neskaupstaðar eru í íslensku landsliðunum í blaki sem hófu keppni á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg í dag. Fleiri leikmenn liðanna eiga ættir að rekja til Norðfjarðar þótt þeir séu ekki á mála hjá Þrótti.Í kvennalandsliðinu eru þær Erla Rán Eiríksdóttir, Hulda Elma Eysteinsdóttir og Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir en Hulda Elma var í vetur valinn leikmaður ársins í Mikasa-deild kvenna. Þá er Matthías Haraldsson, þjálfari Þróttar, þjálfari kvennalandsliðsins.
Liðið hóf keppni á leikunum gegn Kýpur í morgun og tapaði 3-0.
Áður hafði liðið siplað í forkeppni HM í fyrsta sinn. Liðið var í riðli með Lettlandi, Eistlandi og Litháen og tapaði öllum leikjum sínum.
Valgeir Valgeirsson er fulltrúi Norðfirðinga í karlalandsliðinu. Liðið spilaði gegn Kýpur í dag og tapaði 3-0 líkt og kvennalandsliðið.
Þá var karlaliðið í forkeppni HM og lék gegn Grikklandi, Noregi og Svíþjóð. Það tapaði leikjunum þremur.