Tvær sveitir að austan í efstu deild Íslandsmótsins í bridge
Tvær austfirskar sveitir spiluðu um helgina í efstu deild á Íslandsmótinu í bridge. Nokkur ár eru síðan Austfirðingar áttu síðast sveit í deildinni.Sveitirnar komu annars vegar frá Haustaki og hins vegar Austfari. Sveit Haustaks endaði í fjórða sæti með 213 stig.
Í henni spiluðu þeir Guttormur Kristmannsson, Þorsteinn Bergsson,Magnús Ásgrímsson, Hlynur Garðarsson, Hrannar Erlingsson og Pálmi Kristmannsson.
Sveit Austfars varð hins vegar í áttunda og neðsta sæti og féll í aðra deild með 152 stig. Í henni spiluðu þeir Unnar Atli Guðmundsson, Óskar Elíasson, Ólafur Þ Jóhannsson, Arnar Geir Hinriksson, Jón Halldór Guðmundsson og Pétur Sigurðsson.
Sveitirnar mættust innbyrðis í fyrstu umferð og vann Austfar þá 16-14.
Myndir: Hrannar Erlingsson