Viðar Örn: Leikur til að læra af
Viðar Örn Hafsteinsson, spilandi þjálfari körfuknattleiksliðs Hattar, segir marga jákvæða punkta hafa verið í leik liðsins gegn úrvalsdeildarliði Stjörnunnar í 32ja liða úrslitum bikarkeppni karla. Bikarmeistararnir hafi einfaldlega verið of góðir fyrir fyrstu deildar liðið.„Við tökum það jákvæða út úr þessum leik en við mættum miklu betra liði," sagði Viðar í samtali við Austurfrétt eftir leik.
„Við áttum okkar kafla. Við þurfum að vinna í að lengja góðu kaflana og stytta þá slöku. Þeir voru töluvert betri en við þurfum að læra og reyna að komast á þann stað sem þeir eru á."
Sérstaklega í fyrri hálfleik virtust sem Hattarmenn hefðu gengið á múr í formi varnar Stjörnunnar. Strax eftir að Bandaríkjamaðurinn Matthew Hairston kom inn á í sínum fyrsta leik fyrir Garðabæjarliðið varði hann tvö skot. Því þriðja bætti hann við þegar hann varði þriggja stigaskot stóra mannsins í liði Hattar, Frisco Sandidge.
Hattarmönnum gekk illa að spila sig í gegnum vörn Stjörnunnar en reyndu frekar langskot sem gengu misvel.
„Matthew Hairstone er maðurinn sem breytir Stjörnuliðinu úr góðu liði í frábært. Hann er flottur leikmaður en þeir voru líka skynsamir og hjálpuðust vel að í vörninni.
Við vorum hræddir. Þeir vörðu nokkur skot og spiluðu hörku vörn og þá virtust menn vera með lítið hjarta.
Við hefðum getað verið skynsamari því við reyndum erfið skot í stað þess að láta boltann ganga og spila betur saman. Við lærum hins vegar af þessu. Við spilum við töluvert slakari lið í hverri viku."