Blak: Karlaliðið tapaði á Ísafirði
Lið Þróttar í úrvalsdeild karla í blaki tapaði leik sínum um síðustu helgi gegn Vestra á Ísafirði 3-0.Ísfirðingar höfðu yfirburði í fyrstu tveimur hrinunum sem þeir unnu 25-19 og 25-18.
Þróttur átti möguleika í þriðju hrinu. Var yfir 10-12 en fékk þá á sig fjögur stig í röð. Þrótti tókst eftir að að jafna, síðast í 18-18 en þá skoruðu Vestfirðingar tvö stig í röð og unnu 25-22.
Miguel Melero og Jaime Vargas voru atkvæðamestir hjá Þrótti sem er í sjötta sæti deildarinnar.
Bæði karla og kvennalið Þróttar spila útileiki gegn HK um helgina.
Mynd: Blakdeild Þróttar/Sigga Þrúða