Blak: Þróttur getur tryggt sig í úrslitin í kvöld
Þróttur Neskaupstað getur tryggt sér sæti í úrslitum Íslandsmóts kvenna í blaki í kvöld þegar liðið tekur á móti HK í þriðju viðureign liðanna í undanúrslitum. Þróttur vann anna leikinn á laugardag.Þróttur hafði yfirburði í fyrsta leiknum í Neskaupstað á fimmtudag og hafði aftur örugg tök á leiknum þegar liðin mættust í Kópavogi á laugardag og vann 3-0.
Þróttur byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 0-7 í upphafi fyrstu hrinu. HK vaknaði til lífsins en munurinn minnkaði aldrei og vann Þróttur hrinuna 15-25.
Heiða Elísabet Gunnarsdóttir skoraði þrjú af síðustu fjórum stigum Þróttar beint úr uppgjöf, en hún gaf einnig upp í byrjun og sendi þá tvær beint í gólfið hjá HK.
Þróttur fór betur af stað í annarri hrinunni og komst í 4-9. HK jafnaði í 12-12 en Þróttur seig aftur fram úr og vann 17-25.
HK var yfir 5-3 í þriðju hrinu sem var annars jöfn upp í 10-10. Þá tók Þróttur á rás og breytti stöðunni í 12-21. HK svaraði þá með sex stigum í röð en Þróttur var sterkari á endasprettinum og vann hrinuna 19-25.
Paula del Olmo Gomez var stigahæst Þróttar með 14 stig en Heiða Elísabet skoraði 11.
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leik kemst í úrslitin og hefur Þróttur sem fyrr segir unnið fyrstu tvo. Þriðji leikurinn verður í Neskaupstað og hefst kl. 20:15 í kvöld.