Blak: Þróttur í úrslit eftir sigur á baráttuglöðu HK-liði - Myndir
Lið Þróttar er komið í úrslit Íslandsmótsins í blaki eftir 3-1 sigur á HK í Neskaupstað í gærkvöldi í þriðja leik liðanna í undanúrslitum. HK liðið seldi sig dýrt í leiknum en Þróttarliðið var sterkara þegar á reyndi. Þjálfari Þróttar var ánægður með hvernig liðið stóðst áhlaupið.HK var með bakið uppvið vegg eftir tvo 3-0 yfirburða sigra Þróttar í fyrstu tveimur leikjunum. Fyrsta hrinan gaf ekki beint fyrirheit um viðsnúning, Þróttur vann hana 25-15 og komu síðustu stigin meðan Hrafnhildur Ásta Njálsdóttir gaf upp.
Þróttur tók forustuna í annarri hrinu og var þremur stigum yfir framan af. HK jafnaði og komst yfir 12-13. Þróttur tók þá leikhlé en fékk samt á sig tvö stig strax í viðbót. Borja Gonzales, þjálfari, tók þá annað leikhlé og tók þá aðeins við sér.
Öflug vörn HK var grunnurinn að góðu gengi á þessum kafla. Sérstaklega lék hávörnin vel á móti Paulu Gomez og voru tvær HK stelpur yfirleitt alltaf klárar þegar boltanum var spilað til Paulu.
Í stöðunni 19-20 varð nokkurra mínútna hlé á leiknum á meðan fundið var út úr sendiröð HK. Þróttur jafnaði strax í 20-20 en fékk síðan þrjú stig á sig. Þróttur skoraði þá stig og vann sendiréttinn en uppgjöf Önu Valal Vidal fór beint í netið og HK kláraði hrinuna 21-25.
HK hangir í
HK var yfir í byrjun þriðju hrinu en með öflugri vörn tók Þrótti að komast yfir og byggja upp fjögurra stiga forskot, 12-8. Í stöðunni 14-10 tók HK leikhlé og eftir það minnkuðu gestirnir muninn í 15-14.
Aftur var HK að spila frábæra vörn en þegar á leið efldist sóknarleikur Þróttar á meðan svo virtist sem baráttan væri farin að þreyta HK þannig að liðið gerði mistök sem það hafði ekki gert áður. Þróttur bjó loks til stuðpúða þegar liðið komst í 21-18 og vann hana 25-21 eftir að seiling var dæmd á HK.
Þróttur stakk af í byrjun fjórðu hrinu og komst í sex stiga forskot, 9-3. Hrafnhildur Ásta átti þá góðar uppgjafir sem HK var í mestu vandræðum með. Eftir leikhlé skoraði HK þrjú stig í röð og svo aftur fjögur til viðbótar til að jafna í 10-10.
Á kafla spilaðist leikurinn þannig að í hvert skipti sem Þróttur gat búið sér til meira en tveggja stiga forskot mistókst það á sama tíma og HK nýtti ekki tækifæri til að komast yfir. Aftur náði Þróttur tökum á leiknum í stöðunni 21-18 og kláraði hrinuna 25-20.
HK spilar alltaf góða vörn
HK er þar með úr leik en liðið getur horft jákvætt á baráttu sína í síðasta leiknum og oft á tíðum frábæran varnarleik. Þróttarliðið var hins vegar aðeins sterkt.
„Þetta var erfiður leikur í dag, þær komu til að berjast og skoruðu yfir 20 stig í þremur hrinum,“ sagði Borja eftir leikinn.
Þannig var það ekki í fyrstu leikjunum. „HK spilar alltaf vel gegn okkur, við fórum til dæmis í oddahrinu í úrslitaleik bikarkeppninnar. Við vissum því að þetta yrði erfið rimma og undirbjuggum okkur vel. Við réðum fyrstu tveimur leikjunum þar sem þær skoruðu varla 20 stig í hrinu.
HK spilar alltaf góða vörn en uppgjafir okkar valda þeim vandræðum. Tölfræðin segir okkur að við erum með mun betri uppgjafir en þær, jafnvel þær bestu í deildinni. Þegar við sendum á rétta staði kemur það okkur í betri stöðu til að sækja.“
Heimavöllurinn skiptir máli í úrslitunum
Þróttur var í gær án Heiðu Elísabetar Gunnarsdóttur sem var veik en hún hafði verið næst stigahæst í fyrri leikjunum tveimur. „Ég hefði viljað klára leikinn fyrr, við vorum sex stigum yfir snemma í síðustu hrinunni en missum það niður. Við höfum ekki efni á að gera það.“
Þróttur mætir næst Aftureldingu í úrslitum sem sló Stjörnuna út í hinum undanúrslitunum. Fyrsti leikur liðanna verður í Neskaupstað næsta mánudagskvöld og fær það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki Íslandsmeistaratitilinn.
„Við munum nýta þessa viku sem við höfum til að undirbúa okkur vel. Okkur líst ágætlega á leikina, við höfum spilað vel gegn Aftureldingu í vetur. Ég tel okkur eiga góða möguleika á Íslandsmeistaratitlinum, sérstaklega því ef til oddaleiks kemur þá verður hann hér í Neskaupstað. Það skiptir máli að spila fyrir framan þetta frábæra fólk.“