Brynja Líf í unglingalandsliðið
Brynja Líf Júlíusdóttir varð nýverið önnur konan í sögu körfuknattleiksdeildar Hattar til að verða valin í lokahóp hjá íslensku landsliðið.Brynja Líf hefur verið valinn í U-15 ára landslið kvenna í körfuknattleik. Einu sinni áður kona frá Hetti komist í unglingalandslið en það var móðir Brynju, Kristín Rut Eyjólfsdóttir. Hún var valin í U-16 ára landsliðið árið 1996.
Báðar eiga það sameiginlegt að æfa með strákahópnum á þeim tíma sem þær eru valdar. Þá hefur Kristín Rut þjálfað Brynju í yngri flokkum. Eftir því sem næst verður komist eru þær einu konurnar af Austurlandi sem komist hafa í lokahópa landsliða í körfuknattleik.
Kristín Rut fór á sínum tíma á Norðurlandamót í Danmörku en liðið nú stefnir á Norðurlandamót í Finnlandi um mánaðamótin júní/júlí. Æfingar byrja í lok maí.
Mynd: Körfuknattleiksdeild Hattar