Fótbolti: FHL tók við bikarnum úr hendi landsliðsþjálfarans – Myndir
FHL fékk á laugardag deildarmeistratitilinn í Lengjudeild kvenna formlega afhentan að loknum síðasta heimaleik tímabilsins sem var 6-4 sigur á ÍR. Í annarri deild karla eru vonir KFA um að komast upp um deild endanlega úr sögunni.Fyrir leik mátti búast við öruggum sigri FHL miðað við stöðu liðanna í deildinni, FHL öruggur deildarmeistari en ÍR fallið. Leikurinn spilaðist þó ekki þannig í fyrri hálfleik.
Kristín Magdalena Barboza kom FHL yfir á 11. mínútu en ÍR-liði jafnaði strax og komst svo yfir tíu mínútum síðar. Alexa Bolton jafnaði á 25. mínútu, Björg Gunnlaugsdóttir kom FHL aftur yfir á 29. mínútu og Hafdís Ágústsdóttir skoraði fjórða mark FHL á 31. mínútu. ÍR minnkaði þó muninn fimm mínútum fyrir leikhlé.
Í seinni hálfleik kom munurinn á liðunum betur í ljós því hann var eign FHL, sem náði að pressa og vinna boltann sæmilega framarlega. Liðið fékk nokkur færi auk þess sem tvö mörk voru dæmd af vegna rangstöðu.
Loks á 72. mínútu skoraði Björg löglegt mark eftir að hafa sloppið inn fyrir vörnina hægra megin. Hún fullkomnaði þrennu sína á 81. mínútu þegar hún skoraði úr víti eftir að hendi var dæmd á varnarmann ÍR. ÍR átti eitt mark inni, úr einni af fáum alvöru sóknum sínum í hálfleiknum.
Ekki besti leikurinn
„Þetta var ekki frábær leikur en gott að vinna síðasta heimaleikinn. Við tókum góðan fund í hálfleik og bættum eftir hann það sem gekk illa í fyrri hálfleik og héldum áfram því sem gekk vel,“ sagði Rósey Björgvinsdóttir, fyrirliði FHL í leikslok.
Þar sem um var að ræða síðasta heimaleik tímabilsins var liðinu afhentur deildarmeistaratitillinn, sem það tryggði sér fyrir rúmri viku. Það gerði Norðfirðingurinn Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins. „Ég get ekki lýst hvað það er geggjuð tilfinning (að hafa tekið við bikarnum). Það er frábært að hafa afrekað þetta með þessum stelpum,“ sagði Rósey.
Annað hvort Fram eða Grótta munu fylgja FHL upp í úrvalsdeildina. Lokaleikur FHL verður gegn Fram í Reykjavík eftir viku. „Við erum bara að hugsa um að klára þetta tímabil áður en við förum að hugsa um það næsta. Eftir leikinn tökum við gott hlé áður en við förum að einbeita okkur að Bestu deildinni,“ sagði Rósey.
Í leikslok var skýrt frá því að bæjarráð Fjarðabyggðar hefði ákveðið að veita liðinu afreksstyrk upp á tvær milljónir króna. Upphæð styrks vegna árangursins verður ákveðin við gerð fjárhagsáætlunar Múlaþings síðar í haust.
Dýrkeypt jafntefli á heimavelli
Af úrslitum annarra austfirska liða um helgina er fátt gott að frétta. Höttur/Huginn steinlá gegn efsta liðinu Selfossi, 5-0, í annarri deild karla. Þar eru vonir KFA um að komast upp úr henni úr sögunni eftir 3-3 jafntefli gegn Ægi á heimavelli í gær.
Ægir komst yfir á 15. mínútu en Jacques Fokam Sandeu jafnaði á 23. mínútu og Marteinn Már Sverrisson kom KFA yfir á 35. mínútu. Ægir skoraði tvö mörk fyrsta kortérið í seinni hálfleik en Sandeu jafnaði á fimmtu mínútu uppbótartíma.
Önnur úrslit helgarinnar gerðu síðan endanlega út um tölfræðilega möguleika KFA á að komast upp um deild. Liðið er í 5. sæti með 32 stig þegar tveir leikir eru eftir, sjö stigum frá Völsungi sem er í öðru sætinu. Höttur/Huginn er í 7. sæti með 27 stig og hefur tapað fjórum leikjum í röð.
Í umspili efsta hluta 2. deildar kvenna tapaði Einherji 1-2 fyrir KR á Vopnafirði. KR-ingar voru 0-2 yfir þegar Oddný Karólína Hafsteinsdóttir skoraði á 64. mínútu.