Fyrstu leikirnir um sjómannadagshelgina
Fyrstu knattspyrnuleikirnir á Austurlandi á þessari leiktíð verða um sjómannadagshelgina þegar bikarkeppni Knattspyrnusambandsins hefst. Ekki verður leikið í Íslandsmótinu eystra fyrr en í lok júní.Þetta kemur fram þegar farið er yfir nýja leikjaniðurröðun KSÍ sem birt var á föstudag. Upphaflega átti Íslandsmótið að hefjast fyrstu helgina í maí og bikarinn aðeins fyrr en Covid-19 faraldurinn rústaði þeim áformum.
Samkvæmt nýju leikjaniðurröðuninni verður fyrsti leikurinn eystra laugardaginn 6. júní þegar karlalið Hattar/Hugins tekur á móti Sindra. Daginn eftir tekur Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir á móti Hömrunum í kvennaflokki.
Laugardaginn þrettánda tekur Leiknir á móti Einherja og Fjarðabyggð heimsækir sigurvegarann úr leik Hattar/Hugins og Sindra.
Kvennaliðið á fyrsta heimaleikinn í Íslandsmótinu eystra, sunnudaginn 21. júní, gegn Fram í annarri deild kvenna. Karlalið Leiknis, Fjarðabyggðar, Einherja og Hugins/Hattar hefja öll leik sömu helgi á útivöllum.
Fjarðabyggð og Huginn/Höttur spila heimaleiki laugardaginn 27. júní og Leiknir daginn eftir. Fyrsti heimaleikur Einherja verður ekki fyrr en 4. júlí.
Faraldurinn hefur einnig þau áhrif að leikið verður lengra inn í haustið en tíðkast hefur. Íslandsmóti karla lýkur 10. október en kvenna 3. október. Þann dag leika sömuleiðis öll austfirsku liðin síðustu heimaleiki sína.