Góður árangur hjá Reyðfirðingum á glímumóti
Nemendur í Grunnskóla Reyðarfjarðar náðu góðum árangri á hinu árlega grunnskólamóti Glímusambands Íslands um helgina. Í flokknum 10. bekkur strákar röðuðu nemendur úr Grunnskóla Reyðarfjarðar sér í öll þrjú efstu sætin.Af öðrum flokkum má nefna að nemendur úr Gunnskóla Reyðafjarðar náðu efsta sæti í fjórum flokkum af ellefu á mótinu.
Hér má sjá nöfn þeirra sem náðu efsta sætinu í sínum flokkum.
5. bekkur stúlkur
Alvilda Guðrún Ólafsdóttir Grsk Reyðarfirði
8. bekkur stúlkur
Elín Eik Guðjónsdóttir Grsk Reyðarfirði
6. bekkur strákar, stærri
Einar Bragi Baldursson Grsk Reyðarfirði
10. bekkur strákar
1. Hákon Gunnarsson Grsk Reyðarfirði
2. Þórður Páll Ólafsson Grsk Reyðarfirði
3. Snjólfur Björgvinsson Grsk Reyðarfirði
Mynd: fjardabyggd.is