Góður árangur UÍA á Meistaramóti í frjálsum íþróttum
Um nýliðna helgi fór fram Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum á Selfossi. Tveir keppendur kepptu undir merkjum UÍA og stóðu þeir sig báðir vel.Hin 15 ára gamla Björg Gunnlaugsdóttir gerði sér lítið fyrir og vann til fjögurra gullverðlauna en þau voru í: langstökki þar sem hún stökk 4,77 metra, 200 metra hlaupi þar sem hún hljóp á tímanum 27,28 sekúndum, 300 metra hlaupi þar sem hún hljóp á 44,54 sekúndum og 600 metra hlaupi þar sem tími hennar var 1 mínúta og 48,74 sekúndur. Þá vann hún einnig til tveggja silfurverðlauna í þrístökki og 100 metra hlaupi. Tími Bjargar í 600 metra hlaupi er nýtt mótsmet.
Viktor Ívan Vilbergsson, keppti í flokki 16-17 ára og stóð sig einnig afar vel. Hann nældi sér í silfurverðlaun í 800 metra hlaupi á tímanum 2 mínútur og 10,68 sekúndur. Þá hlaut hann bronsverðlaun í 1500 metra hlaupi.
Bæði náðu þau lágmörkum í úrvalshóp Frjálsíþróttasambandi Íslands, Viktor í báðum sínum greinum og Björg í 100 og 200 metra spretthlaupi.