Góður árangur á Grunnskólamóti Íslands í glímu

Sautján nemendur frá Grunnskóla Reyðarfjarðar tóku þátt í Grunnskólamóti Íslands í glímu, sem fór nýverið fram á Hvolsvelli. Hópurinn stóð sig með miklum ágætum.



Hópurinn hafnaði í öðru sæti í stigakeppni skóla á eftir Hvolsskóla og innan hans voru fjórir grunnskólameistarar, þau Þórður Páll Ólafsson, Birkir Ingi Óskarsson, Marta Lovísa Kjartansdóttur og Nikólína Bóel Ólafsdóttir.

Að loknu grunnskólamóti fór fram bráðskemmtileg og fjörug sveitaglíma þar sem Reyðfirðingarnir kepptu undir merkjum UÍA. Allar sveitir stóðu sig með mikilli prýði og ein sveitin, sveit 10 og 11 ára stráka, varð sveitaglímumeistari.

Þóroddur Helgason glímufrömuður var með í för og var ánægður með sitt fólk. „Það var lærdómsríkt og skemmtilegt fyrir krakkana að hitta og fá að takast á við glímukrakka hvaðanæva af landinu. Allir voru ánægðir þegar heim var komið eftir langt ferðalag þar sem lífsgleðin og vináttan var í fyrirrúmi, sagði Þóroddur.

 

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.