Hans vann þrefalt á Ístölt Austurland: Myndir
Knapinn Hans Kjerúlf var sigursæll á ístöltskeppni Freyfaxa sem fram fór á Móavatni við Tjarnarland fyrir skemmstu. Hann vann þar allar höfuðgreinarnar þrjár, nokkuð sem enginn annar hefur leikið eftir í tíu ára sögu mótsins.
Í A-flokki gæðinga sigraði Hans á Flugar frá Kollaleiru og á Flans frá Víðivöllum fremri í B-flokki og opnum flokki. Austurfrétt leit við á keppninni á meðan keppt var í B-flokknum.
Nánari úrslit eru á vef Freyfaxa.
Helstu úrslit
A flokkur
1 Flugar frá Kollaleiru / Hans Kjerúlf 8,49
2 Gígja frá Litla-Garði / Þorbjörn Hreinn Matthíasson 8,41
3 Fljóð frá Horni I / Ómar Ingi Ómarsson 8,33
B flokkur
1 Flans frá Víðivöllum fremri / Hans Kjerúlf 8,77
2 Vökull frá Síðu / Guðröður Ágústson 8,59
3 Hrollur frá Grímsey / Þorbjörn Hreinn Matthíasson 8,39
Opinn flokkur
1 Hans Kjerúlf / Flans frá Víðivöllum fremri 7,50
2-3 Þorbjörn Hreinn Matthíasson / Freyja frá Akureyri 6,50
2-3 Guðröður Ágústson / Dröfn frá Síðu 6,50
Áhugamenn
1 Hrönn Hilmarsdóttir / Vífill frá Íbishóli 6,67
2-3 María Ósk Ómarsdóttir / Sveifla frá Hafsteinsstöðum 6,17
2-3 Brynja Rut Borgarsdóttir / Von frá Bjarnanesi 6,17
Unglingaflokkur
1 Elísabet Líf Theodórsdóttir / Saga frá Flögu 5,83
2 Stefán Berg Ragnarsson / Prinsessa frá Bakkagerði 5,33
3 Sara Lind Magnúsdóttir / Kolka frá Hólmatungu 4,83