Helgin: Bikar á loft hjá FHL
FHL tekur á móti deildarmeistaratitili Lengjudeildar kvenna í síðasta heimaleik sínum í sumar sem spilaður verður á morgun. Á Egilsstöðum verður gengið í sólarhring til styrktar rannsóknum á krabbameini og ný sýning opnar á Vesturvegg Skaftfells.FHL leikur á morgun sinn síðasta heimaleik í sumar þegar ÍR kemur í heimsókn í Fjarðabyggðarhöllina. Þrjár vikur eru síðan FHL tryggði sér úrvalsdeildarsætið og tíu dagar síðan deildarmeistaratitillinn var í höfn en á morgun verður bikarinn formlega afhentur. Leikurinn hefst klukkan 14:00.
Í annarri deild karla á KFA heimaleik gegn Ægi á sunnudag sem skiptir máli til að halda vonum liðsins um að komast upp um deild á lífi. Á Vopnafirði tekur Einherji á móti KR í umspili efsta hluta annarrar deildar kvenna á morgun. Höttur/Huginn á útileik gegn Selfossi.
Á Vilhjálmsvelli verða Styrkleikarnir haldnir annað árið í röð. Um er að ræða boðhlaup þar sem gengið um völlinn í sólarhring, frá hádegi á morgun til hádegis á sunnudag, til fjársöfnunar fyrir rannsóknum á krabbameini, til að styðja við fólk sem greinst hefur með krabbamein í nærsamfélaginu og sem táknrænn stuðningur við fólk sem hefur greinst með mein.
Á Seyðisfirði opnar klukkan 17:00 ný listsýning listamannsins Liusar Lohmanns á Vesturvegg Skaftfells. Linus notar fjölbreyttar aðferðir, svo sem teikningu, prentgerð og skúlptúr, við vinnslu mynda og hluta þar sem hann kannar skynjun efnis í endurgerðum birtingarmyndum. Á sýningunni eru ný verk úr röðinni eftir Dieter Roth „Trophies.“
Linus, sem býr á Seyðisfirði, hefur nóg að gera þessa dagana í því fyrir viku opnaði hann aðra sýningu í galleríi Skriðuklausturs. Hann notar oft handsmíðað verkfæri eða vélar til að móta niðurstöður sem innihalda ferli, frammistöðu og, í sumum tilfellum, teikningar búnar til með sérstökum hreyfingum eða flóknum ferlum.
Þá fer Ferðafélag Fljótsdalshérað í göngu upp í Lambadal, innst í Borgarfirði á morgun. Þar verður meðal annars skoðuð ummerki mikils jarðraks sem varð þar árið 1937 og gengið upp á Krosstind. Farið verður frá húsnæði Ferðafélagsins á Egilsstöðum klukkan átta í fyrramálið eða frá Fjarðarborg á Borgarfirði klukkan níu.