Hjálmar skákmeistari Fljótsdalshéraðs

Hjálmar Jóelsson sigraði á Skákþingi Fljósdalshéraðs. Mótið fór fram að Brávöllum 7 á Egillstöðum, sex skákmenn tóku þátt í mótinu að þessu sinni.

hjalmar_skakmeistari.jpgSkákþing Fljótsdalshéraðs var fyrst haldið árið 1989 og hefur verið telft um titilinn Skákmeistari Fkjótsdalshéraðs allar götur síðan. Mótið féll þó niður árið 2000 af ókunnum ástæðum.  Apótekið á Egilsstöðum gaf í upphafi verðlaunagrip mótsins sem er farandgripur, haganlega útskorinn hrókur sem gerður var Hjá Eik á Miðhúsum á sínum tíma.  Hrókinn hefur verið verðlaunagripur á Skákþingi Fjótsdalshéraðs frá upphafi, en Hjálmar vinnur þennan grip nú í fyrsta skipti, gripinn sem hann og kona hans gáfu til keppninnar í upphafi.

Keppnin var spennandi og bauð upp á miklar sviptingar, Jón Björnsson var fyrir síðustu umferðina með 3,5 vinning og átti á tímabili unnið tafl gegn Guðmundi Ingva Jóhannssyni í síðustu umferðinni en glutraði henni niður og tapaði skákinni. Hjálmar Jóelsson tapaði einnig í síðustu umferðinni fyrir Magnúsi Ingólfssyni og varð þar af leiðandi ekki einn efstur á mótinu heldur.

Í þremur fyrstu sætunum urðu:

1. sæti. Hjálmar Jóelsson 3,5 vinninga, hann vann Jón Björnsson á stigum.

2. sæti. Jón Björnsson     3,5 vinninga.

3. sæti. Guðmundur Ingvi Jóhannsson 3 vinninga.

Hægt er að skoða öll úrslit mótsins á heimasíðu Skáksambands Austurlands

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar