Höttur fékk Goðaskjöldinn
Lið Hattar fékk Goðaskjöldinn fyrir framkomu sína utan og innan vallar á Goðamótinu sem fram fór á Akureyri fyrir skemmstu. Þangað fóru lið í 5. og 6. flokki kvenna sem kepptu í flokki B-liða.
Sjötta flokks liðið lenti í öðru sæti en fimma flokks liðið vann flokk b-úrslit, lentu í fimmta sæti mótsins og fóru heim með bikar. Þjálfarar liðanna eru María Lena Heiðarsdóttir og Sigríður Baxter.