Ísold Fönn fyrst Íslendinga til að ná tveimur þreföldum stökkum
Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir, listdansari á skautum frá Möðrudal á Fjöllum, varð nýverið fyrst Íslendinga til að stökkva samsetningu með tveimur þreföldum stökkum.Þetta kemur fram í frétt á vef Skautasambands Íslands. Þar má sjá myndband af æfingtu þar sem hún lendir samsetningunni.
Í fréttinni kemur fram að Ísold Fönn hafi fyrst íslenskra skautara lent bæði þreföldu „Lutzi“ og fyrstu samsetningunni með tveimur þreföldum stökkum, þrefalt „Flippi“ og þreföldu „Toeloop“.
Þá setti hún stigamet í flokki Junior Ladies, í stuttum æfingum með 56,81 stig, frjálsum æfingum með 94,38 og samanlagt með 151,19 stig.
Árangrinum náði hún á mótum í Champéry í Sviss þar sem hún hefur búið og æft síðasta árið. Þjálfari hennar er Stéphane Lambiel sem sjálfur er tvöfaldur heimsmeistari og silfurverðlaunahafi á Ólympíuleikum.
Mynd: Skautasamband Íslands