Jón Björnsson atskákmeistari Austurlands
Atskákmót Austurlands var haldið á dögunum í Eskifjarðarskóla. Fimm keppendur tóku þátt í mótinu. Atskákmeistari Austurlands varð Jón Björnsson, Egilsstöðum.Mótið sem átti upphaflega að halda 17. apríl var frestað til 24. apríl og fór þá fram á Eskifirði. Enginn mætti til leiks í unglingaflokki og féll hann því niður. Fimm þátttakendur voru í flokki fullorðinna.
Atskákmeistari Austurlands varð Jón Björnsson Egilsstöðum. Í öðru sæti varð Hákon Sófusson Eskifirði og í þriðja sæti Rúnar Hilmarsson, Reyðarfirði.
Heimasíða Skáksambands Austurlands.