Knattspyrna: Freyja Karín áfram í lokakeppni EM með U19
Freyja Karín Þorvarðardóttir keppti á dögunum með U19 liði kvenna í knattspyrnu í undankeppni EM. Liðið tryggði sér sæti á EM í Belgíu 18.-30. júlí. Freyja Karín segir það mikinn heiður að hafa verið valin í hópinn og frábært að ná markmiðinu að komast á EM.
U19 lið kvenna í knattspyrnu keppti á dögunum í milliriðli EM í Danmörku. Þær spiluðu þrjá leiki, gegn Danmörku, Svíþjóð og Úkraínu.
Fyrsti leikur liðsins var gegn Danmörku sem lauk með 0-1 sigri Íslands. Annar leikur liðsins var gegn Svíþjóð sem lauk með 1-2 sigri Íslands. Að lokum mættu stelpurnar liði Úkraínu í leik sem endaði í jafntefli 2-2. Freyja Karín var í byrjunarliði í leiknum á móti Úkraínu. „Þetta voru mjög krefjandi leikir og gaman að fá tækifæri að keppa á móti sterkum liðum Svíþjóðar og Danmörku," segir Freyja Karín.
Freyja Karín segir frábæra liðsheild einkenna liðið og að markmiðið hafi alltaf verið að komast á EM með þessum hópi. „Markmiðið okkar var alltaf að komast á EM og hálfgerður draumur að komast áfram, augnablikið sem við fengum fréttirnar var magnað,“ segir Freyja Karín.
Freyja Karín varði páskafríinu í Danmörku að spila fótbolta og segir það mikil forréttindi að vera valin í U19 hópinn og fá að keppa fyrir hönd Íslands. „Það var algjörlega þess virði að eyða páskunum með þessum frábæra hóp og mikil forréttindi að vera valin í þennan 20 manna hóp og fá að keppa fyrir hönd Íslands,“ bætir Freyja Karín við.