Körfubolti: David Ramos í þriggja leikja bann
David Guardia Ramos, leikmaður körfuknattleiksliðs Hattar, hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann fyrir að hafa sparkað í leikmann Vals í leik liðanna í úrslitakeppni Íslandsmóts karla síðasta fimmtudagskvöld.Leikmennirnir lentu í rimmu um miðjan annan leikhluta. Frank Booker, leikmaður Vals, sló til Davids í baráttu um frákast. David féll í gólfið en þar sem hann lá á bakinu sparkaði hann í áttina að Frank og hitti í klof hans. Samkvæmt leikskýrslu fékk Frank villu fyrir sinn gjörning en David var umsvifalaust vísað úr húsinu.
Aga- og úrskurðarnefnd tók málið til meðferðar í gær. Samkvæmt tilkynningu frá Körfuknattleikssambandi Íslands byggir aganefndin ákvörðun sína á d-lið 13. greinar reglugerðar sambandsins um agamál.
Þar segir að hafi einstaklingi verið vísað af leikvelli vegna viljandi líkamsmeiðingar eða tilraunar til slíks skuli dæma viðkomandi í að minnsta kosti þriggja leikja bann. Víðtækari heimildir eru til staðar hafi atlagan alvarlegri afleiðingar.
Þetta þýðir að David missir af fjórða leik Hattar og Vals sem leikinn verður í íþróttahúsinu á Egilsstöðum í kvöld. Þar sem Valur hefur unnið tvo leiki gegn einum þarf Höttur á sigri að halda til að knýja fram oddaleik, sem yrði spilaður í Valsheimilinu á fimmtudagskvöld. David verður einnig í banni þar ef liðsfélagar hans vinna í kvöld.