Rafíþróttadeild Austra gengur frá ráðningu þjálfara
Rafíþróttadeild Austra hefur ráðið Karl Steinar Pétursson sem yfirþjálfara deildarinnar. Karli á að baki feril sem þjálfari í öðrum íþróttagreinum.Gengið var frá samningunum í gær. Karl Steinar hefur meðal annars þjálfað í hjá crossfit-félaginu Ými á Reyðarfirði og hjá Lyftingafélagi Austurlands. Hann starfar annars sem tæknimaður hjá Securitas samhliða námi í rafvirkjun.
Magni Þór Harðarson, formaður rafíþróttadeildarinnar, segir forsvarsmenn deildarinnar afar ánægða með samninginn við Karl Steinar.
„Hann á að baki langan feril sem tölvuleikjaspilari og er vel kunnugur því samfélagi sem myndast hefur kringum rafíþróttir seinustu ár.
Karl Steinar mun stýra þjálfun og faglegum hluta deildarinnar fyrir öll aldursstig en framundan hjá honum og stjórn deildarinnar er að klára ráðningu á fleiri þjálfurum sem munu mynda þjálfarateymi deildarinnar. Við bjóðum hann velkominn til starfa og hlökkum til samstarfsins.“