Raúl Viangre þjálfar blaklið Þróttar á næstu leiktíð
Blakdeild Þróttar Neskaupstað hefur samið við Spánverjann Raúl Rocha Vinagre um að þjálfa meistaraflokka félagsins á næstu leiktíð auk þess að koma að þjálfun yngri flokka.Frá þessu er greint í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í morgun. Raúl hefur þjálfað frá 18 ára aldri, bæði í yngri flokkum og efstu deildum á Spáni.
Hann er ekki ókunnugur Íslandi þar sem hann þjálfaði og spilaði með Fjallabyggð tímabilið 2017-18.
Raúl mun einnig spila með meistaraflokki karla í stöðu uppspilara og koma að þjálfun 2. – 5. flokks. Hann er væntanlegur til Norðfjarðar í ágúst.
Yfirþjálfari þeirra flokka hefur verið ráðinn Miguel Angel Ramon Melero sem spilaði með karlaliðinu í vetur. Hann heldur því áfram auk þess að þjálfa lið félagsins í 2. deild.