Þróttur getur tryggt Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli

blak_throttur_hk_urslit_02042013_0195_web.jpg
Þróttur er með pálmann í höndunum í viðureign sinni við HK um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna eftir 0-3 sigur í öðrum leik liðanna í Kópavogi í kvöld. Þróttur hefur unnið fyrstu tvo leikina og getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í þriðja leiknum í Neskaupstað á laugardag.

Þróttur tók forustuna snemma í fyrstu hrinu leiksins í kvöld og vann hana 18-25. Liðið hélt áfram á sömu braut í þeirri næstu, komst í 0-6 og vann hana örugglega, 14-25. Norðfjarðarliðið hafði sömuleiðis undirtökin allan tíman í þriðju hrinunni og vann 17-25.

HK liðið átti óvenju dapran dag í kvöld og virtist hreinlega hafa orðið eftir austur í Neskaupstað eftir fyrsta leikinn á miðvikudag. Á móti var Þróttar liðið vel undirbúið og spilaði þétta vörn. Sérstaklega tókst þeim að halda aftur af hinni öflugu Elsu Valgeirsdóttur.

Lilja Einarsdóttir var stigahæst í liði Þróttar í kvöld með 12 stig en Lauren Laquerre skoraði ellefu.

Matthías Haraldsson, þjálfari Þróttar, vildi lítið ræða nýliðinn leik þegar Austurfrétt náði í hann í kvöld. „Ég er mjög sáttur við leik liðsins í kvöld en við verðum að spila jafn vel eða betur á laugardaginn. Úrslitarimman er langt frá því að vera búin. Við tökum bara eitt stig, eina hrinu fyrir í einu.“

Hann segir að öll athyglin beinist nú að leiknum í Neskaupstað á laugardag. „Við ætlum okkur að sjálfsögðu að klára dæmið þá og ég vonast til að sjá fullt íþróttahús í Neskaupstað.“

Leikurinn hefst þar klukkan 14:00.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.