Stefnan á að gefa efnilegum heimamönnum tækifæri
Staðfest hefur verið að Dragan Stojanovic verði áfram þjálfari meistaraflokks karla hjá Fjarðabyggð í knattspyrnu. Stefna félagsins er að byggja leikmannahópinn meira upp á uppöldum leikmönnum.Þetta staðfestir Ingi Steinn Freysteinsson, varaformaður félagsins í samtali við Austurfrétt.
Liðið endaði í 9. sæti annarrar deildar síðasta sumar. Stuðningsmenn liðsins hafa gagnrýnt gengi þess síðustu sumur og bent á í því samhengi fjölda erlendra leikmanna, en aðeins þrír af þeim níu leikmönnum sem spiluðu flesta leiki fyrir liðið í sumar voru íslenskir.
Ingi Steinn segir stefnuna að byggja liðið upp til næstu ára á heimamönnum. „Það eru sterkir árgangar að koma upp hjá okkur og ætlum við að gefa þeim stökkpall á næstu árum með því að fækka aðkomumönnum sem við fáum í skrefum,“ segir Ingi Steinn.
Hann segir ekki enn ljóst hvaða leikmenn verði áfram hjá félaginu en á næstunni verði settur kraftur í að fara yfir samninga leikmanna til að finna hverjir verði áfram og hverjir rói á önnur mið.
Framtíðin er björt bæði hjá bæði karla- og kvennaliðunum hjá okkur í fjarðabyggð. Við erum því spennt fyrir framtíðinni og hlökkum til að halda áfram að byggja upp félagið.“