Tinna Rut íþróttamaður ársins hjá Fjarðabyggð

Tinna Rut Þórarinsdóttir hefur verið valin íþróttamaður ársins 2020 hjá Fjarðabyggð. Sagt er frá þessu á vefsíðu Fjarðabyggðar.

Tinna Rut er tvítug blakkona sem er uppalin hjá Þrótti Neskaupstað en hún hefur æft blak frá sex ára aldri og hefur spilað sérstaklega vel með meistaraflokki Þróttar síðustu keppnistímabil.

Tinna Rut er auk þess landsliðskona og var hún t.a.m í A-landsliðshópn­um sem mætti Slóven­íu og Belg­íu í í und­an­keppni EM á síðasta ári. Tinna er mikil og góð fyrirmynd annarra iðkenda, öflug og samviskusöm.

Í vor skrifaði Tinna Rut undir samning við Lindesberg Volley í Svíþjóð og hefur leikið stórt hlutverk með liðinu í sænsku úrvalsdeildinni í haust.

„Tinna var því eðlilega ekki heima í Neskaupstað þegar íþrótta- og frístundastjóri bankaði upp á hjá henni í morgun til að tilkynna henni um úrslitin og færa henni verðlaunagripina. Við verðlaununum tóku foreldrar hennar þau Sigríður Þrúður og Þórarinn,“ segir á vefsíðunni.

Þau sem tilnefnd voru til íþróttamanns Fjarðabyggðar 2020 voru auk Tinnu Rutar:
Arakdiusz Jan Grzelak - Knattspyrnumaður Leikni
Birkir Óskarsson - Knattspyrnumaður Val
Elísabet Eir Hjálmarsdóttir - Knattspyrnukona Leikni
Freyja Karín Þorvarðardóttir - Knattspyrnukona Þrótti
Jakob Kristjánsson - Skíðamaður Skíðafélag Fjarðabyggðar
Kjartan Már Garski Ketilsson - Glímumaður Val
Viktor Ívan Vilbergsson - Frjálsíþróttamaður Leikni
Tómas Atli Björgvinsson - Knattspyrnumaður Austra
Þórarinn Örn Jónsson - Blakmaður Þrótti

Íþrótta- og tómstundanefnd velur Íþróttamann Fjarðabyggðar árlega. Nefndin kom saman þann 10. desember sl. og kaus en bæði aðal- og varamenn í nefndinni hafa atkvæðisrétt í valinu.

„Fjarðabyggð óskar Tinnu Rut til hamingju með nafnbótina íþróttamaður Fjarðabyggðar og óskar þeim íþróttamönnum sem tilnefndir voru, sem og öðrum íþróttamönnum í Fjarðabyggð, velfarnaðar á komandi íþróttaári,“ segir á vefsíðunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.