Tinna Rut kemur heim í Þrótt
Blakkona Tinna Rut Þórarinsdóttir hefur ákveðið að snúa aftur í Þrótt og spila með liðinu út leiktíðina eftir að sænsku deildakeppninni lauk um helgina. Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir fagnaði þar deildarmeistaratitli. Bæði meistaraflokkslið Þróttar töpuðu á heimavelli um helgina.Tinna Rut gekk í raðir Lindesberg Volley síðasta sumar en liðinu gekk ekki vel og varð í næst neðsta sæti deildarinnar. Tinna Rut, sem fædd er árið 2000, öðlaðist þar hins vegar dýrmæta reynslu. Hún vann sig inn í liðið eftir sem á leið og kom við sögu í 12 af 20 leikjum liðsins og skoraði 53 stig. Hún hefur komist um samkomulag um að snúa aftur í sitt gamla félag og spila með því út leiktíðina.
Annar fyrrum Þróttari, Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, fagnaði deildarmeistaratitlinum um helgina. Lið hennar Hylte/Halmstad varð í efsta sæti deildarinnar með 56 stig. Liðið náði frábærum árangri, tapaði aðeins 5 hrinum og einum leik, þeim þriðja síðasta. Sex efstu lið deildarinnar halda áfram í úrslitakeppni.
Hér heima áttu bæði meistaraflokkslið þróttar heimaleiki á laugardag. Kvennaliðið tapaði 0-3 gegn HK eða 18-25, 20-25 og 23-25 í hrinum. Liðið er í 5. sæti með 6 stig, stigi á eftir Álftanesi en liðin berjast við Þrótt Reykjavík um fjórða og síðasta sætið í úrslitakeppninni.
Karlaliðið tapaði mikilvægum leik gegn Aftureldingu 1-3 eða 19-25, 25-19, 13-25 og 27-29. Liðið er einnig í fimmta sæti en töluvert bil, eða fimm stig, hefur nú myndast milli þess og Aftureldingar sem eru í fjórða sætinu.
Tveggja vikna hlé verður nú gert á deildinni og spilað í bikar. Karlaliðið er reyndar úr leik eftir ósigur gegn Hamri í fyrstu umferð en kvennaliðið mætir KA á útivelli á miðvikudag.