Tour de Ormurinn á morgun
Hjólreiðakeppnin Tour de Ormurinn verður haldin á morgun í áttunda sinn. Vegfarendur á svonefndum Fljótsdalshring eru beðnir um að gæta varúðar þar sem hjólreiðafólkið verður á ferðinni.Keppnin verður að vanda ræst klukkan níu í fyrramálið við Söluskála N1 á Egilsstöðum. Í kringum ræsinguna verður þjóðveginum fyrir neðan Söluskálann lokað.
Keppendur hjóla síðan eftir Egilsstaðanesi yfir í Fellabæ þaðan sem beygt er inn eftir. Takmarkanir verða á umferð meðan hjólreiðafólkið fer þar um.
Í boði eru tvær vegalengdir, 68 og 103 km. Keppendur í styttri hringnum beygja fyrir neðan Hengifoss yfir í átt að Hallormsstað meðan þeir sem fara lengri leiðina halda áfram upp í Norðurdal Fljótsdals.
Búast má við að fyrstu keppendur í styttri hringnum komi í mark rétt fyrir klukkan ellefu en þeir fyrstu úr lengri hringnum upp úr hádegi. Síðustu keppendur ættu að renna í mark á þriðja tímanum. Á meðan keppendur koma í mark verður aftur gripið til lokana á leiðinni fyrir neðan Söluskálann. Brautarverðir verða staðsettir á umferðarmiklum gatnamótum og varasömum köflum, auk þess sem bílar eru á undan og eftir keppendahópnum, en vegfarendur á svæðinu eru beðnir um að sýna aðgát á meðan keppninni stendur.