Hafliði ráðinn framkvæmdastjóri Þróunarfélagsins

Hafliði Hafliðason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands tímabundið, í kjölfar uppsagnar Stefáns Stefánssonar framkvæmdastjóra félagsins. Þá hefur verið skipuð þriggja manna framkvæmdastjórn félagsins. Stjórnin mun ekki þiggja starfsframlag fráfarandi framkvæmdastjóra á uppsagnartímanum. Fyrirtæki í eigu Stefáns þáði 26 milljónir króna greiðslu við sölu Malarvinnslunnar til Kaupfélags Héraðsbúa haustið 2007.

runarflag_austurlands.jpg

http://www.austurglugginn.is/index.php/200911042351/Austurland/Ymislegt/Hafdi_hag_af_solu_Malarvinnslunnar_til_KHB

 

Hafliði Hafliðason lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1998. BA. gráða í sagnfræði, með stjórnmálafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands 2002. MA í alþjóðastjórnmálum frá University of Sussex, Englandi 2004.  Hann starfaði hjá Tekjusviði Fjársýslu ríkisins frá 2004 til 2006. Með háskólanámi m.a.starfsmaður VISA, gerði heimildaþætti fyrir Stöð 2 og vann að vefsíðugerð hjá tölvufyrirtækinu OZ.

Hefur sinnt málefnum byggðaþróunar á Austurlandi: Verkefnastjórnun, ráðgjöf, stefnumótun, úttektir og rannsóknir á sviði byggðamála.

 

 

-

 

6. nóvember sendi Stefán Stefánsson fv. framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu til Ríkisútvarpsins og er hún birt hér þar sem Austurglugginn tók upp frétt RÚV um málið.

 

 

,,Ríkisútvarpið flutti í gær ítrekað fréttir af sölu Malarvinnslunnar til Kaupfélags Héraðsbúa og aðkomu minni að því máli. Öll var framsetningin á þann máta að glæpur hefði verið framinn og að ég undirritaður hefði framið glæpinn. Slegið var fram, án nokkurs rökstuðnings, að minn þáttur í málinu væri ,,sorglegur" og ,,siðlaus" svo dæmi séu tekin. 

Hvergi í þessari umfjöllun Fréttastofu Ríkisútvarpsins kemur fram hvaða brot ég eigi að hafa framið. Í því sambandi get ég upplýst að félag í minni eigu kom að sér verkefni, á árinu 2007, sem snerist um þessa sölu á Malarvinnslunni. Þessi verktaka var í fullu samræmi við ráðningarsamning minn sem framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands. Þetta er staðfest af stjórnarformanni Þróunarfélagsins. Því síður voru nokkur lög eða aðrar reglur brotnar í þessu verkefni. Þá bendi ég á að aldrei hefur verið gerður ágreiningur um störf mín fyrir Þróunarfélagið, svo sem sjá má af fundargerðum stjórnar.

Ég harma að í fréttaumfjöllun Ríkisútvarpsins hefur verið blandað saman óskyldum málefnum og með því vegið að starfsheiðri mínum og heiðarleika."

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar