Landskjörstjórn verður að taka af skarið

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út í öllum landsbyggðarkjördæmunum vegna hríðarbyls á morgun, kjördag. Landskjörstjórn ætti að taka af skarið og fresta kosningum strax, frekar en bíða og sjá og ætlast til að staðbundnar kjörstjórnir axli ábyrgðina.

Eftir því sem liðið hefur á vikuna hafa líkurnar aukist á að veðrið verði eins og verst spáir. Slíkt þýðir ófærð yfir fjallvegi og jafnvel innanbæjar. Á venjulegum degi væru áhrifin óveruleg en á morgun en meira undir.

Vissulega hafa Austfirðingar tekið vel við sér síðustu daga og flykkst á kjörstað utankjörfundar. Það er hins vegar skýrt að sá möguleiki kemur aldrei í stað hefðbundins kjörfundar. Kjósandi getur breytt atkvæði sínu þar til hann hefur sett það í kassann á hefðbundnum kjörfundi.

Vegagerð og sveitarfélög ætla að gera sitt til að halda vegum opnum á morgun og láta vita hvenær þeir eru færir. En þótt kjósandi komist á kjörstað, er ekki þar með sagt að hann komist heim aftur fyrr en eftir dúk og disk. Þegar hreyfir vind í lausum snjó getur snarlega orðið ófært.

Einn af hornsteinum lýðræðisins er að allir geti nýtt sinn atkvæðisrétt. Við aðstæður sem þessar ber okkur sem samfélagi að gæta að réttindum þeirra sem veikast standa við þessar kringumstæður. Við getum gengið svo langt að segja að ef einn kjósandi treystir sér ekki á kjörstað vegna veðurs þá eigi að fresta.

Í kosningalögum er ekkert sem segir til um undir hvaða forsendum á að fresta kosningum. Það er því huglægt mat. Veður og jafnvel færð á vegum er það líka. Það sem einn einstaklingur upplifir sem ógn álítur annar áskorun og skemmtun. Það getur verið að á Austurlandi búi fólk sem er vant að ferðast í kófi en hér býr líka fólk sem ekki er vant því.

Heita kartaflan er á ferð á milli kjörstjórna. Formlega virðist ákvörðunin liggja hjá yfirkjörstjórn kjördæmis, væntanlega með stuðningi landskjörstjórnar. Því hefur hins vegar verið vísað til undirkjörstjórna að meta aðstæðurnar.

Þetta þýðir það að formaður kjörstjórnar í litlu byggðarlagi getur setið uppi með það að vera sá sem krefst þess að kosningum sem frestað. Það þarf hugrekki í að vera sá sem stendur vörð um hagsmuni einstaklingsins sem fastur upp í afdal, sem er peð í hafi 270 þúsund kjósenda en á sama rétt, og krefst þess að kosningu verði frestað.

Þess vegna ætti landskjörstjórn að taka af öll tvímæli fyrr en síðar og fresta kosningunum, í þar minnsta þar sem útlitið ver verst. Veðurspá er með þeim hætti að víða á landinu eru líkur á að kjósendur muni eiga í vandræðum með að komast til og frá kjörstað. Það gerir ekkert til þótt kosningaveislur, sjónvarpsútsendingar og útdeiling jöfnunarþingsæta frestist um sólarhring. Það væri rétt ákvörðun fyrir lýðræðið.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar