Mikil hálka
Flughált er nú á Fjarðarheiði og víða hálka eða hálkublettir inn til landsins þótt autt sé með ströndinni. Mikil hálka var á Egilsstöðum í morgun og virtist það koma fólki nokkuð í opna skjöldu, bílar runnu stjórnlaust og börn duttu af hjólum sínum. Vegfarendur eru beðnir um gæta varúðar.