Samgöng
Samtök áhugafólks um jarðgöng á Mið – Austurlandi
Stofnuð 29. júní 2002 í Mjóafirði.
Markmið samtakanna er að gera Mið – Austurland að einu atvinnu og þjónustusvæði, rjúfa vetrareinangrun og stytta vegalengdir með jarðgöngum milli byggðarlaga á Mið – Austurlandi.
Forsenda þess að byggja upp raunverulegt atvinnu og þjónustusvæði á Mið –Austurland með 6000 – 7000 íbúum, er að bæta samgöngur og stytta vegalengdir með jarðgöngum milli:
Eskifjarðar – Neskaupstaðar.
Neskaupstaðar – Mjóafjarðar – Seyðisfjarðar – Héraðs.
Jarðgöng stytta vegalengdir milli ofangreindra byggðarlaga verulega.
Dæmi um styttingar:
Byggðarlög | með göngum | er í dag |
Neskaupstaður – Seyðisfjörður | 26 km | 100 km |
Eskifjörður – Seyðisfjörður | 25 km | 72 km |
Reyðarfjörður – Seyðisfjörður | 38 km | 61 km |
Mjóifjörður – Seyðisfjörður | 10 km | 62 km |
Neskaupstaður – Eskifjörður | 21 km | 22 km |
Neskaupstaður – Egilsstaðir | 43 km | 71 km |
Mjóifjörður – Egilsstaðir | 34 km | 42 km |
Egilsstaðir – Seyðisfjörður | 34 km | 27 km |
Vegalengd milli Seyðisfjarðar og Egilsstaðar lengist lítillega með göngum, en á móti kemur að ekið er um veg í u.þ.b 200 – 300m hæð, í stað rúmlega 630 m hæð eins og nú er gert þegar ekið er yfir Fjarðarheiði.
Hið sama er að segja um leiðina milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar. Í dag er þessi leið í 630m hæð, en færi mest í 230m hæð.