Verri þeirra vinskapur ?
Sigurður Ragnarsson framkvæmdastjóri skrifar:Nú er haustið að ganga í garð og ef ekki á að verða mjög harður vetur í þjóðfélaginu þá þarf stórhuga aðgerðir. Nú fer Icesave-málum vonandi að linna svo hægt verði að fara að slá skjaldborg um heimilin og fyrirtækin í landinu, svo notaðir séu þekktir frasar. Það er þannig að ef ekki fara að sjást stórtækar aðgerðir verður bylting í þessu landi, mun meiri og öfgafyllri en sú sem átti sér stað fyrr á árinu.
Ég er sennilega svona vitlaus, en til hvers í ósköpunum erum við að fá lán í hundruð milljarða
vís frá AGS og „vinum“ okkar á Norðurlöndum og fleirum ef við ætlum ekki að nota þá
peninga til að bjarga heimilunum og atvinnulífinu? Er það meiningin að láta þessa peninga
safna skuldavöxtum á reikningi í Seðlabankanum til þess eins að reyna að halda uppi ónýtri
krónu sem enginn hefur lengur trú á eða mun fá trú á? Ef þessum peningum verður ekki
dælt út í atvinnulífið nú á haustmánuðum og tekið raunverulega á vanda heimila þá verður allt
vitlaust.
Það virðist vera að bankar og fjármögnunaraðlar séu hættir að horfa á rekstrarreikninga
fyrirtækja og horfa eingöngu á fjármagnspakkann, sem er algjörlega út úr korti fyrr en
verður búið að laga gengið. Það er fullt af fyrirtækjum í landinu að sýna góðan rekstur og
hafa staðið við allar sínar skuldbindingar, einnig gagnvart bönkum og
fjármögnunarfyrirtækjum samkvæmt þeim lánasamningum sem þau fengu og skrifuðu
undir. Það að bankarnir féllu og felldu þjóðfélagið um leið er ekki sök þessara fyrirtækja
og því fráleitt að þau falli vegna þess að þau fái ekki fyrirgreiðslu. Það að sumir bankastjórar
skuli jafnvel voga sér að koma fram með hroka og segja lántakendum að þeir verði bara að
standa við skuldbindingar sínar; stóðu bankarnir við sínar? Það ætti bara að rassskella þá!
Þjóðfélagið og stjórnvöld verða að koma inn með fjármagn og hjálpa bönkunum að standa við
sínar skuldbindingar þannig að þeir sem geta staðið í skilum, miðað við þann samning sem
þeir skrifuðu undir, haldi áfram sínum reksti. Til dæmis er hægt að leiðrétta gengismisvægið
með því að stofna nýja kreppuvísitölu eldri lána þar sem lánin yrðu endurreiknuð frá einhverri
dagsetningu áður en hrunadansinn hófst. Ég blæs á að það sé of dýrt því ef atvinnulífið
stöðvast og greiðsluflæði einstaklinga og fyrirtækja stöðvast þá fyrst verður það dýrt.
Það á að afskrifa skuldir íbúðareigenda með almennum reglum því ef það er gert með
sértækum aðgerðum milli ráðgjafa bankanna og einstaklinga þá er fyrst verið að stuðla að
mismunun í þessu þjóðfélagi og kunningjasamfélagið mun grassera sem aldrei fyrr. Er það það
sem við viljum? Ég segi nei! Það væri hægt að búa til kerfi, t.d. í líkingu við
vaxtabótakerfið þar sem afskrift nýttist þeim sem búa í eigin húsnæði og með tekju- og
eignatengingum, þ.e. gagnsæjum reglum sem ekki er hægt að fara í kringum.
Sú stórfellda eignaupptaka, sem nú er að eiga sér stað er vítaverð, þar sem bankar og
fjármögnunarfyrirtæki leysa til sín eignir á undirverði. Það er auðvitað ágætt fyrir
tilvonandi eigendur bankanna við nýja einkavæðingu að fá íbúðareignir Íslendinga í kaupbæti.
Ég er samfylkingarmaður og held enn að Samfylkingin sé flokka færust um að koma skikki á
íslensk þjóðfélag, en þá verðið þið að bretta upp ermarnar og í guðs bænum brjótið
odd af oflæti ykkar og notið góða ráðgjöf, sama hvaðan hún kemur.
Ef Evrópski seðlabankinn er ekki tilbúinn að veita íslensku krónunni þann bakstuðning sem
þarf, þar til við getum hent henni, eða AGS vill ekki leyfa okkur að byggja upp atvinnuvegina
aftur, þá vil ég frekar missa þessa ágætu „vini“ okkar því þá gildir: Vondur er þeirra
fjandskapur, en verri þeirra vinskapur.